Starfsemi vetrarins 2012-2013

 

17. febrúar 2012: Málþing í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl 15:00. Umræðuefni: "Staða ungra vísindamanna í íslensku vísinda- og fræðasamfélagi". Frummælendur: Karl Ægir Karlsson, Snævar Sigurðsson, Gunnþóra Ólafsdóttir, Magnús Lyngdal Magnússon og Þórólfur Þórlindsson.  Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, flytur inngangsorð.

24. janúar 2012: Fundur í Norræna húsinu kl 17:00. Fyrirlesari Þóra Árnadóttir jarðfræðingur við Norræna eldfjallasetrið, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, og fjallar um efnið "Ísland stækkar og hækkar".

 

Starfsemi vetrarins 2010-2011

16. desember 2011: Fundur Kaffi Sólon, Bankastræti 7a efri hæð, kl. 15:00.  Fyrirlesari Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur, og fjallar um "Frankenstein og félagar: líftækni í ljósi skáldskapar".

30. nóvember 2011: Fundur í Stofu V102 (Betelgás) í Háskólanum í Reykjavík, kl 16:30.  Fyrirlesari Kristinn R. Þórisson dósent í tölvunarfræði við Háskólan í Reykjavík, og fjallar um "Sjálfskipandi gervigreind kerfi".

26. október 2011: Fundur í fundarsal Eldfjallaseturs, Öskju, kl 12 á hádegi.  Fyrirlesari Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlitsins, og fjallar um "Heilsu bænda".

30. mars 2011: Aðalfundur í Norræna húsinu kl. 19:15.  Að loknum aðalfundarstörfum heldur Axel Kristinsson fyrirlestur um "Hinir vopnuðu lifa af: Samkeppni samfélaga í ljósi þróunarfræði", og hefst hann kl 20.00.

23. febrúar 2011: Málþing í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands kl. 16-18:00.  Frummælendur Magnús Karl Magnússon og Jón Torfi Jonasson, prófessorar við Háskóla Íslands, og fjalla um "Fjármögnun  grunnrannsókna á Íslandi:  bein framlög eða samkeppnissjóðir?".  Fundarstjóri : Guðrún Nordal, prófessor við Háskóla Íslands.

26. janúar 2011: Fundur í Norræna húsinu kl 20:00.  Fyrirlesari Vilmundur Guðnason forstöðumaður Hjartaverndar og prófessor við Háskóla Íslands, og fjallar um "Niðurstöður úr vísindastarfi Hjartaverndar".

24. nóvember 2010: Fundur í Norræna húsinu kl 20:00. Stefán Arnórsson prófessor við Háskóla Íslands og Ólafur Flóvenz forstjóri ÍSOR og gestaprófessor við Háskóla Íslands munu rökræða um "Er jarðhitinn endurnýjanleg eða endanleg auðlind?".

 

27. október 2010: Fundur í Þjóðmenningarhúsinu Hverfisgötu kl. 20:00. Fyrirlesari Arnar Pálsson dósent við Líf og umhverfisvísindadeild, Verkfræði og náttúruvísindasviði, Háskóla Íslands, og fjallar um "Fjölbreytileika lífvera: samspil þroskunar og þróunar"

29. september 2010: Fundur í Þjóðmenningarhúsinu Hverfisgötu kl. 20:00. Fyrirlesari Úlfar Bragason rannsóknaprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og fjallar um ""Hann vissa eg alvitrastan og hófsamastan."  Um frásagnarviðhorf í Sturlungu".

30. apríl 2010: Aðalfundur í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands kl. 19:15.  Að loknum aðalfundarstörfum heldur Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur fyrirlestur um "Eldgos í Eyjafjallajökli", og hefst hann kl 20:00.

31. mars 2010: Fundur í Norræna húsinu kl 20.00.  fyrirlesari Unnur Dís Skaptadóttir prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, og fjallar um  "Pólverjar á Íslandi - Þátttaka og hindranir".

13. mars 2010: Fundur í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu kl 15.00.  Fyrirlesari Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði og aðferðafræði við Háskólann á Akureyri, og fjallar umefnið: "Íbúakosningar. Er málið svona einfalt?".

9. janúar 2010: Fundur í Þjóðmenningarhúsinu kl 14.00.  Fyrirlesari Eiríkur Steingrímsson prófessor, Lifefna- og sameindalíffræðistofu, Læknadeild Háskóla Íslands, og fjallar um efnið:  "Frá litfrumum til sortuæxla: Bygging og hlutverk stjórnpróteinsins MITF".  Léttar veitingar í boði Vísindafélagins að loknum fundi.

 

Starfsemi vetrarins 2008-2009

25. nóvember 2009: Fundur í sal Norræna hússins kl 20.00.  Fyrirlesari Sigríður Sigurjónsdóttir dósent í íslenskri málfræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, og fjallar um efnið: "Það var sagt mér að það væri partí hérna": ný setningagerð í íslensku.  Kaffiveitingar í boði Vísindafélagsins að loknum fundi.

28. október 2009:  Fundur í sal Norræna hússins kl 20.00.  Fyrirlesari Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur, og talar um Vísindamiðlun: vísindi fyrir alla.

29. apríl 2009.  Framhaldsaðalfundur í Háskólatorgi, stofu HT-103 kl 19:00. Lagabreytingar til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu.  Að loknum aðalfundarstörfum kl. 20:00 heldur Jónas Haralz hagfræðingur fyrirlestur um "Leit að staðfestu.  Ágrip af sögu íslenskra peningamála".  Að erindi loknu og umræðum verður boðið upp á kaffiveitingar.  Ath. breyttan fundarstað!

25. mars 2009. Aðalfundur í Norræna húsinu kl. 19.15. Að loknum aðalfundarstörfum heldur Gunnþóra Ólafsdóttir fyrirlestur um endurnærandi áhrif ferðalaga um náttúru Íslands og hefst hann kl. 20.00.

 
25. febrúar 2009. Fundur í sal Norræna hússins kl 20:00.  Fyrirlesari Þórarinn Guðjónsson dósent við Læknadeild Háskóla Íslands. Efni: Stofnfrumur og krabbamein: Frá hagnýtri þekkingu til nýrra meðferðarmöguleika.

28. janúar 2009: Fundur í sal Norræna hússins kl 20:00.  Fyrirlesari: Freysteinn Sigmundsson, vísindamaður á Norræna eldfjallasetrinu, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Efni: Jarðskorpuhreyfingar og eldfjallakerfi Íslands.
 

Starfsemi vetrarins 2007-2008

29. september 2007: Ráðstefna Vísindafélagsins og Háskóla Íslands haldin í hátíðarsal Háskóla Íslands. Yfirskrift Vísindamaðurinn Jónas Hallgrímsson. Háskólarektor, Kristín Ingólfsdóttir, setur ráðstefnuna.

Fyrirlesarar:
Sveinbjörn Rafnsson: Jónas Hallgrímsson og fræði fornra minja.
Sigurður Steinþórsson: Jónas og jarðfræðin 1830-1845.
Trausti Jónsson og Hilmar Garðarsson: Jónas Hallgrímsson og veðurathuganir á Íslandi um og upp úr 1840.
Guðrún Kvaran: Vatnareyðar sporðablik, málblíðar mæður og spegilskyggnd hrafntinnuþök: Um orðasmíð Jónasar Hallgrímssonar.
Sveinn Yngvi Egilsson: Jónas Hallgrímsson - náttúruskáld?

Fundir vetrarins:

31. október 2007: Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur, Stórgos á bronsöld í Miðjarðarhafi og áhrif þess.

28. nóvember 2007: Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur, Vita activa og vita contemplativa. Hugleiðingar um samband heimspeki og stjórnmála út frá kenningum Hönnuh Arendt.

30. janúar 2008: Arnfríður Guðmundsdóttir guðfræðingur, Lúther og konurnar. Um áhrif siðbótar Marteins Lúthers á líf kvenna.

15. febrúar 2008: Aðild að málþingi ásamt Íslenskri málnefnd með yfirskriftinni: Íslenska í vísindum og fræðum. Íslensk málnefnd stendur nú fyrir röð málþinga í samvinnu við ýmsa aðila og eru málþingin liður í undirbúningi að samningu draga að íslenskri málstefnu. Haraldur Bernharðsson, stjórnarmaður í Íslenskri málnefnd setti málþingið en fyrirlesarar voru:
Ástráður Eysteinsson: Útstöð eða miðstöð.
Sigurður Júlíus Grétarsson: Málstefna og málnotkun í félagsvísindum: Nokkrar ábendingar.
Þorsteinn Vilhjálmsson: Þekking, hugsun, tunga.
Örnólfur Thorlacius: Náttúrufræði á íslensku.

27. febrúar 2008: Þórunn Rafnar erfðafræðingur: Rannsóknir á erfðaþáttum algengra sjúkdóma: krabbamein í blöðruhálskirtli.

26. mars 2008: Aðalfundur Vísindafélagsins. Að loknum aðalfundarstörfum mun Bjarni E. Guðleifsson jarðræktarfræðingur halda erindi um kal í túnum.

24. september 2008: Fundur í Hátíðarsal HÍ kl 20:00. Hjalti Hugason prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands : Sigurbjörn Einarsson biskup - ævi, störf, guðfræði.

29. október 2008: Sveinn Ólafsson eðlisfræðingur: Eðlisfræði og agnahraðlar.
Fundurinn verður í sal Norræna hússins og hefst kl. 17. Athugið breyttan fundartíma!

28. nóvember 2008: Málþing í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, kl 14-16.  Um "Hlutverk vísinda í framtíð Íslands".  Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, flytur inngangsorð.  Aðrir ræðumenn: Guðrún Nordal prófessor, Þórólfur Þórlindsson prófessor, Einar Steingrímsson prófessor, og Magnús Karl Magnússon læknir. Fundarstjóri verður Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara og menntamálaráðherra. Kaffiveitingar í boði Vísindafélagsins.

6. desember 2008: Afmælisfundur Vísindafélags Íslendinga, vegna 90 ára afmælis þess, í Hátíðarsal Háskóla Íslands, kl 14-16. Fyrirlesarar: Unnur Anna Valdimarsdóttir dósent, Karl Ægir Karlsson lektor, Kristján Leósson vísindamaður í eðlisfræði, Vilhjálmur Árnason prófessor. Fundarstjóri verður Þórarinn Guðjónsson varaforseti Vísindafélags Íslendinga. Léttar veitingar í boði Vísindafélagsins að fundi loknum.